Fnykur
Hmm, sjaldséðir hvítir...Ég var búin að skrifa heljarinnarstóra færslu um Londonferðina en einhverra hluta vegna dó bloggsíðan og færslan með. Sökum yfirþyrmandi gremju nennti ég ekki að skrifa allt aftur og nenni því ekki héðan af. Látum nægja að segja að það hafi verið...
HRIKALEGA GAMAN!
Annars var ég að láta hugann reika yfir uppvaskinu áðan og datt þá í hug að fólk sem lætur illa um borð í flugvélum er jafnan kallað "flugdólgar", hvað er Kristján Hreinsson þá? Júróvisjón-dólgur?
O sei sei...
Gulli í Bókhlöðunni
Hvernig er það, getur maður pantað sjúkraflug á laugardagskvöldi af engri annarri ástæðu en þeirri að manni langi til Reykjavíkur? Ég hélt ekki... o sei sei.Annars... ÉG ER AÐ FARA TIL LONDON Á FIMMTUDAGINN! JEIJ!
Plá-hneta
Eftir miklar og háværar rökræður höfum við Arnaldur komist að því að við séum hvorugt frá Jörðinni. Ekki er hann heldur frá Mars eða ég frá Venus.Borðum meiri fisk!
Hef ekkert að segja að svo stöddu, skelli inn einni uppskrift.What what?
Þessu bloggi er stolið frá Svanhvíti, en mér fannst mér bera skylda til að bera út fagnaðarerindið. Ég lofa því að þið verðið komin með lagið á heilann eftir fyrstu hlustun.
http://www.youtube.com/watch?v=fbGkxcY7YFU
Þvílík snilld!
Sendlar hlusta á Celine Dion
Ég veit ekki afhverju, en ég er að flippa út í einhverri spennu! Það er svo margt skemmtilegt framundan. Svanhvít kemur um páskana og Rúnar og Eggert Hrafn fá að fylgja með. Það verður án efa hrikalega skemmtilegt hjá okkur.Svo er það auðvitað London 19. apríl, helgarferð með vinnugellunum. Það var magnað í Köben fyrir þremur árum og verður sko ekki síðra í þetta skiptið, enda eintómir stuðboltar sem ég er að vinna með. Stjórinn sér sér svo fært að koma frá Lillehammer að hitta okkur og verður það auðvitað alveg frábært. Það er spennandi að sjá brot af skólakerfinu þarna, án efa allt öðruvísi en hér.
Ömm, það var sosem ekkert fleira merkilegt.
Ja, ég fór í Lyfju í gær og keypti laxerolíu. Ég bjóst við að konan spyrði í hvað ég ætlaði að nota hana en hún spurði bara ekki neitt. Ég ætla nú ekki að fara að laxera, heldur nota hana á hendurnar á mér. Mér líður stundum eins og það séu að vaxa hrúðurkarlar í lófunum á mér, ég er svo mikið í vatni.
Ég gerði mér saltmaska úr 1 tsk laxerolíu, 1 tsk. ólívuolíu og 1 tsk. af grófu salti og nuddaði þessu vel og lengi á hendurnar. Saltið fjarlægir dauðar húðfrumur, og olíurnar mýkja. Svo á laxerolían víst að vera bólgueyðandi og eitthvað svoleiðis. Ég man a.m.k. eftir því að mamma notaði hana alltaf út í baðvatnið. Ég er ekki frá því að þetta sé að gera gott. Sumir vilja meina að salt þurrki húðina en það er ekki rétt.
Ég er hinsvegar alltaf smeyk við að smakka óvart á fingrunum á mér og fá drullu.
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva
Jæja, er ekki kominn tími á smá geðvonsku?
Hvað er málið með þetta fjandans "Evróvision". Það er voðalega vinsælt að íslenska öll orð og ég er alveg sammála því að það eigi að gera, en þá á líka að íslenska orðin til fulls - ekki hálfs.
"Eurovision" er sem sagt ekki íslenskt orð og því er það t.d. ekki notað í Kastljósinu (var það a.m.k. ekki í gær) og í staðinn notað hálf-íslenskað óyrði; evróvision.
Þetta er auðvitað svipað asnalegt og að hálf-íslenska önnur orð; myndi orðið "kompjúterskjár" verða notað í kastljósinu? Eða easterfrí? Deskstóll? Mjólkurkarton? Götusweeper? Electricitytafla?
Ég held ekki. Ef fólk á erfitt með að segja söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, þá á það bara að segja Júróvisjón!
Myndir
Ég var að prófa að setja inn myndir, endilega kíkið í albúmið. Ég reyndi að setja myndir beint inn í bloggið en auðvitað virkaði það ekki.Prump
Jæja, þá er maður kominn heim úr borginni. Þetta var alveg ljómandi fín ferð en svolítið dýr þar sem Þráinn þurfti bæði að fá ný gleraugu og sundgleraugu (sundgleraugun eru með styrk eins og gleraugu) og svo innlegg og sérsmíðaða inniskó. Það er alveg fáránlegt hvað þetta kostar allt mikið, sérstaklega þar sem hann þarf á þessu að halda. Ég fékk alveg sjokk þegar maðurinn hjá Össuri sagði að hann þyrfti innlegg númer 34. Fyrir 1 1/2 ári fékk hann innlegg númer 31. 3 skóstærðir á 1 1/2 ári!Eins og ég spáði í blogginu áður en ég fór þá hitti ég Svanhvíti alveg helling! (Gaf henni þó engan velling). Við borðuðum saman nærri alla dagana og á föstudagskvöldið fórum við Svanhvít á smá bæjarrölt. Við fórum á ansi rólegan stað (sem ég man ekki hvað heitir) og fengum okkur bjór og kjöftuðum. Á Laugardagskvöldið eldaði ég tælenskan mat og þau skötuhjú komu og borðuðu hjá okkur og svo var spilað til kl 5 um morguninn! Á mánudagskvöldið eldaði Svanhvít svo Dóminós pizzur (hehe) og svo var aftur spilað fram eftir nóttu. Svanhvít var óneitanlega sigurvegari kvöldsins með tvöfalt fleiri stig en við hin. Það var kannski eins gott, mér skilst að hún sé frekar tapsár.
Svo til að stikla á stóru þá gerðist ýmislegt fleira;
Hundur drap sig
Fyllibytta drapst nærri fyrir utan gluggann
IKEA... díses...
Risaeðla kastaði upp (dont ask)
Vogue kerlingar rifust...
Ofl ofl...