Prump

Jæja, þá er maður kominn heim úr borginni. Þetta var alveg ljómandi fín ferð en svolítið dýr þar sem Þráinn þurfti bæði að fá ný gleraugu og sundgleraugu (sundgleraugun eru með styrk eins og gleraugu) og svo innlegg og sérsmíðaða inniskó. Það er alveg fáránlegt hvað þetta kostar allt mikið, sérstaklega þar sem hann þarf á þessu að halda. Ég fékk alveg sjokk þegar maðurinn hjá Össuri sagði að hann þyrfti innlegg númer 34. Fyrir 1 1/2 ári fékk hann innlegg númer 31. 3 skóstærðir á 1 1/2 ári!

Eins og ég spáði í blogginu áður en ég fór þá hitti ég Svanhvíti alveg helling! (Gaf henni þó engan velling). Við borðuðum saman nærri alla dagana og á föstudagskvöldið fórum við Svanhvít á smá bæjarrölt. Við fórum á ansi rólegan stað (sem ég man ekki hvað heitir) og fengum okkur bjór og kjöftuðum. Á Laugardagskvöldið eldaði ég tælenskan mat og þau skötuhjú komu og borðuðu hjá okkur og svo var spilað til kl 5 um morguninn! Á mánudagskvöldið eldaði Svanhvít svo Dóminós pizzur (hehe) og svo var aftur spilað fram eftir nóttu. Svanhvít var óneitanlega sigurvegari kvöldsins með tvöfalt fleiri stig en við hin. Það var kannski eins gott, mér skilst að hún sé frekar tapsár.

Svo til að stikla á stóru þá gerðist ýmislegt fleira;
Hundur drap sig
Fyllibytta drapst nærri fyrir utan gluggann
IKEA... díses...
Risaeðla kastaði upp (dont ask)
Vogue kerlingar rifust...
Ofl ofl...
08. mars 2007 klukkan 20:05
Hjördís Þráins
Daglegt röfl
Svanhvít skrifar ...
Ekki gleyma að ég bakaði dýrindis köku á laugardeginum. Ég er bara svona heppin í spilum og óheppin í ..... hhaaaaa...
Þetta var drullugaman..... fyllibyttan var fyndin hahahaha :D
09. mars 2007 klukkan 17:10
RockSock skrifar ...
Já, alveg rétt! Kakan var góð!

"Hvað er eiginlega í þessari köku?"

"Ja, það er amk ekki hveiti:"

Hahahah!!!

Fyllibyttan var fyndin, Þráinn er búinn að segja öllum á leikskólanum frá þessu og skáldar allskonar sögur í kringum þetta.
10. mars 2007 klukkan 14:07
Sigga skrifar ...
Vildi að ég gæti skemmt mér svona vel líka, en það er ómögulegt í þessum helvítis útnára sem Oslóborg er. Spurjið hvern sem er!
Var að skoða myndir hjá Hrefnu Dís, Þráinn var svo flottur í afmælinu hennar, eins og fermingardrengur!
10. mars 2007 klukkan 19:33

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Hver er RockSock?

Aumingi með hor og heimsku,
hárið greitt í flóka.
Þjáist bæði' af gremju og gleymsku
grínlaust... Érað djóka!

-*-

Yes, I like to expiriment. With my hair... and ways of beating men to a psychological pulp.

-RockSock

Drasl

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...