Sendlar hlusta á Celine Dion

Ég veit ekki afhverju, en ég er að flippa út í einhverri spennu! Það er svo margt skemmtilegt framundan. Svanhvít kemur um páskana og Rúnar og Eggert Hrafn fá að fylgja með. Það verður án efa hrikalega skemmtilegt hjá okkur.
Svo er það auðvitað London 19. apríl, helgarferð  með vinnugellunum. Það var magnað í Köben fyrir þremur árum og verður sko ekki síðra í þetta skiptið, enda eintómir stuðboltar sem ég er að vinna með. Stjórinn sér sér svo fært að koma frá Lillehammer að hitta okkur og verður það auðvitað alveg frábært. Það er spennandi að sjá brot af skólakerfinu þarna, án efa allt öðruvísi en hér.

Ömm, það var sosem ekkert fleira merkilegt.

Ja, ég fór í Lyfju í gær og keypti laxerolíu. Ég bjóst við að konan spyrði í hvað ég ætlaði að nota hana en hún spurði bara ekki neitt. Ég ætla nú ekki að fara að laxera, heldur nota hana á hendurnar á mér. Mér líður stundum eins og það séu að vaxa hrúðurkarlar í lófunum á mér, ég er svo mikið í vatni.
Ég gerði mér saltmaska úr 1 tsk laxerolíu, 1 tsk. ólívuolíu og 1 tsk. af grófu salti og nuddaði þessu vel og lengi á hendurnar. Saltið fjarlægir dauðar húðfrumur, og olíurnar mýkja. Svo á laxerolían víst að vera bólgueyðandi og eitthvað svoleiðis. Ég man a.m.k. eftir því að mamma notaði hana alltaf út í baðvatnið. Ég er ekki frá því að þetta sé að gera gott. Sumir vilja meina að salt þurrki húðina en það er ekki rétt.

Ég er hinsvegar alltaf smeyk við að smakka óvart á fingrunum á mér og fá drullu.
20. mars 2007 klukkan 15:27
Hjördís Þráins
Daglegt röfl
Elísa Stefáns skrifar ...
Hef heyrt það að sumir beri laxerolíuna á bakið þegar það er með bakverk það er að segja!
trúlegast vegna þess að hún er bólgueyðandi :o)
20. mars 2007 klukkan 22:07
London beibí !!
21. mars 2007 klukkan 09:45
Jóna Lind skrifar ...
hei það væri ljótt ef allur leikskólinn fengi drullu...af fína handáburðinum þínum hahahahahah
Nú er óhætt að fara að telja niður í London, það verður stuð !!!!
Hei ertu búin að komast að því hvernig á að setja myndir inn í bloggið...tell me (fáðu Ernu í málið ef þú hefur ekki komist að því)
22. mars 2007 klukkan 07:49
Sigga skrifar ...
úff.. eins gott líka að ruglast ekki á olíuflöskum.. steikja upp úr laxerolíu í stað ólívuolíu!!
22. mars 2007 klukkan 10:49
Elmar Björgvin skrifar ...
Hjördís !!!!!!!!!

Finnst þér ekki merkilegt að ég sé að fara flytja í elskulega bæinn ykkar ?!? :( :/

og ég hélt að við værum vinir !!!!
22. mars 2007 klukkan 18:39
RockSock skrifar ...
Jóna Lind: Niðurtalning er að sjálfsögðu hafin á töflunni í kaffistofunni. Ég hef ekki reynt aftur að setja myndir inn en ég skal athuga málið.

Sigga: Ég steikti einu sinni fisk upp úr uppþvottalegi :S Eftir þau mistök var aldrei aftur keyptur ljósgulur uppþvottalögur, aðeins fagurgrænn!

Elmar: Rólegur á fýlukörlunum! Það er nú svo sjálfsagt að ég hlakki til að fá þig í bæinn...
24. mars 2007 klukkan 10:33
Svanhvít skrifar ...
Hah! Ég er merkilegri en Elmar!
Ég hlakka geðveikt til! hahahaha spenna spenna spenna!!
24. mars 2007 klukkan 12:07

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Hver er RockSock?

Aumingi með hor og heimsku,
hárið greitt í flóka.
Þjáist bæði' af gremju og gleymsku
grínlaust... Érað djóka!

-*-

Yes, I like to expiriment. With my hair... and ways of beating men to a psychological pulp.

-RockSock

Drasl

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...