Borđum meiri fisk!

Hef ekkert að segja að svo stöddu, skelli inn einni uppskrift.

Fiskiburritos

Ný ýsa
2-3 egg
Tabasco sósa
paprikukrydd
svartur pipar
tortilla kökur
salsa sósa
guacamole
sýrður rjómi
ferskt spínat
ostur (rifinn eða í sneiðum)

Sláið saman eggin með paprikukryddi, svörtum pipar og tabascosósu (ég nota ca. 10 dropa, má alveg nota minna). Skerið fiskflökin í litla bita og veltið upp úr eggjunum. Steikið á pönnu í augnablik.
Setjið á tortillakökuna í ca. þessari röð: salsasósu, guacamole, sýrðan rjóma, spínat og ost. Raðið svo heitum fiskibitunum ofan á ostinn svo hann bráðni, rúllið upp og ETIÐ!
27. mars 2007 klukkan 19:43
Hjördís Ţráins
Uppskriftir
Jóna Lind skrifar ...
ummm þessi er girnileg...mig vantar bara ýsuna :o(
Ég mæli svo með uppskrift úr gestgjafanum 1.tbl. 2007, Grískur lambapottréttur með fetaosti. Þessi upskrift er æði og væri mjög góð fyrir leikskólann.
28. mars 2007 klukkan 08:54
RockSock skrifar ...
Ég þarf að tékka á þeirri uppskrift.

Þú getur örugglega notað þorsk eða hvaððanúer sem norsarar borða =oP
28. mars 2007 klukkan 14:25
Svanhvít skrifar ...
Namm... hljómar vel!
Til hamingju! Þú ert hér með ráðin sem kokkur heima hjá þér yfir páskana! Fríðindin sem fylgja starfinu er umgengni við mig. Svo panta ég pítsur í Hamraborg eða á Fernandos þegar þú þarft frí... hljómar vel ekki satt??
29. mars 2007 klukkan 23:28
Addi skrifar ...
Svanhvít skrifar ...
Namm... hljómar vel!
Til hamingju! Þú ert hér með ráðin sem kokkur heima hjá þér yfir páskana! Fríðindin sem fylgja starfinu er umgengni við mig. Svo panta ég pítsur í Hamraborg eða á Fernandos þegar þú þarft frí... hljómar vel ekki satt??


HaHa.
Ég er búinn að vera að safna í kassa fyrir ykkur 1944 réttum (það sem ekki selst í bónus) og skal ég lána þér minn flotta microwave svo þú þurfir ekki að borða réttina kalda
30. mars 2007 klukkan 23:43
RockSock skrifar ...
Svanhvít: Díll

Addi: Það er MINN flotti microwave...
01. apríl 2007 klukkan 16:16
Svanhvít skrifar ...
Addi: Konan samþykkti mína útgáfu þannig að þú verður bara að éta þennan sora sjálfur :D

Hjördís: Sammála þér um að þetta er ÞINN öbbi!!
03. apríl 2007 klukkan 22:39

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Hver er RockSock?

Aumingi međ hor og heimsku,
háriđ greitt í flóka.
Ţjáist bćđi' af gremju og gleymsku
grínlaust... Érađ djóka!

-*-

Yes, I like to expiriment. With my hair... and ways of beating men to a psychological pulp.

-RockSock

Drasl

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...