24mars

What what?

Þessu bloggi er stolið frá Svanhvíti, en mér fannst mér bera skylda til að bera út fagnaðarerindið. Ég lofa því að þið verðið komin með lagið á heilann eftir fyrstu hlustun.

http://www.youtube.com/watch?v=fbGkxcY7YFU

Þvílík snilld!

24. mars 2007 klukkan 20:04
Hjördís Ţráins
Tónlist
3 athugasemdir
24janúar

Hćtti ađ nota duddu

Haldiði ekki bara að trúbadorsgoðið Magnús H. sé ekki að verða frægur!

Það er farið að spila lagið hans 'Stúlkan á barnum' á rás 2 og svo var hann í kastljósinu í gær. Hann stóð sig bara nokkuð vel og var ekkert stressaður að sjá. Hann var óttalega stressaður þegar hann spilaði á
Langa Manga í fyrra en virðist hafa sjóast töluvert síðan þá. Hann tók auðvitað þátt í X-factor, það hlýtur að vera... sjóandi?

Kíkið á kastljósið síðan í gær og sjáið kauða!

Magnús Helgi Sigurðsson sjónvarpsstjóri á netinu

Magnús Helgi Sigurðsson: Stúlkan á barnum

Sjá'st!
24. janúar 2007 klukkan 20:38
Hjördís Ţráins
Tónlist
1 athugasemd
21nóvember

Oj

Hafið þið heyrt eitthvað af lögunum sem Jóhann Helgason er búinn að drulla inn á "alveg nýja" plötu?
Ég heyrði eitt af þeim í útvarpinu í dag; það fór um mig hrollur og ég skellti upp úr í einhverri óútskýranlegri og skyndilegri geðshræringu. Ekki sökum gleði eða aðdáunar, heldur sökum viðbjóðs og almennra ógeðslegheita. Lagið, sem er gamalt og ég hef heyrt áður í annarri útsetningu, er ekki endilega svo slæmt að það veki umsvifalaust klígju, heldur er það flutningurinn.
Hann Jóhann, karlrottan, byrjar það a capella og syngur með enn smeðjulegri rödd en áður og vegna þess hve þessir stúdíóhljóðnemar eru næmir (eins og vera ber) heyrist alveg hryllilega viðbjóðslegt smjatt í karlinum!
Smjattið og smeðjan og sérlega hægt tempóið gera það að verkum að þetta verður eins og einhver viðurstyggilegur níðingur að syngja óð til fórnarlambs síns. Það fer um mig hrollur við tilhugsunina. Ímyndið ykkur bara...

"Yakity yak, smakity smak... taking my time makin love to you."

Ijj...

Ég vil annars taka fram að þegar ég var lítil þá átti ég kasettu með Magnúsi og Jóhanni sem ég hlustaði mikið á og líkaði vel. Segir svosem ekki mikið þar sem ég hlustaði líka á HLH og Sléttuúlfana. Maður grípur bara það sem hendi er næst. O sei sei.

Góða nótt.

21. nóvember 2006 klukkan 06:54
Hjördís Ţráins
Tónlist, Daglegt röfl
3 athugasemdir
10nóvember

Orđleysi

Ætli maður reyni ekki að blogga af skyldurækninni einni saman, nenni því eiginlega ekki. Það er alltaf nóg að gera, stundum allt of mikið; dagvinna, kvöldvinna, næturvinna... bleh.

Það verður ekki einu sinni slappað af um helgina því kammerkórinn er að fara að taka upp disk. Við verðum í kirkjunni fös.-sun., en þar sem sinna þarf venjulegum kirkjustörfum á laugardeginum (skírn, brúðkaupi...) verður dagskráin nokkuð götótt. Það fer svo allt eftir því hvernig vinnst á laugardeginum hvort ég djammi á laugardagskvöldið. Baggalútur er að spila í Víkurbæ og ég ætla sko að mæta! Ef kórinn klárar að taka upp á laugardaginn þá kemur alveg til greina að fá sér smá söngvatn en annars bara kóklæt eða eitthvað. Ég nenni ekki að mæta úldin á sunnudagsmorgun.

Ég nenni ekki að blogga og yfirleitt ekki að elda heldur, því ætla ég að deila með ykkur mjög auðveldri uppskrift af fiskrétti sem er upplagt að "drulla" í form.

Blaðlauksfiskidrulla í ofni - fyrir 4-6

1 1/2 bolli hýðishrísgrjón
2-3 fiskflök
1 blaðlaukur
1 búnt vorlaukur
1 græn paprika
1 msk. olía
1 dós blaðlaukssmurostur
1 dós hvítlauksrjómaostur
2 bollar mjólk
1 grænmetisteningur
Rifinn ostur

1. Sjóðið grjónin og drullið í botninn á eldföstu móti. Búið til sósuna á meðan grjónin sjóða.

2. Skerið grænmetið eftir hentugleik og steikið í olíunni (í potti). Hellið helmingnum af mjólkinni í pottinn og setjið allan ostinn út í. Látið bráðna vel, setjið restina af mjólkinni út í ásamt grænmetisteningnum.

3. Skerið fiskflökin í bita og raðið yfir hrísgrjónin. Hellið sósunni yfir og rifnum osti þar á eftir. Bakið í ofni í 40-50 mín við 200°C. Étið með hvítlausbrauði og salati.

Étið vel og sjá'st!
10. nóvember 2006 klukkan 02:19
Hjördís Ţráins
Tónlist, Daglegt röfl, Uppskriftir
Engin athugasemd

Ađalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Hver er RockSock?

Aumingi međ hor og heimsku,
háriđ greitt í flóka.
Ţjáist bćđi' af gremju og gleymsku
grínlaust... Érađ djóka!

-*-

Yes, I like to expiriment. With my hair... and ways of beating men to a psychological pulp.

-RockSock

Drasl

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...