27mars

Borđum meiri fisk!

Hef ekkert að segja að svo stöddu, skelli inn einni uppskrift.

Fiskiburritos

Ný ýsa
2-3 egg
Tabasco sósa
paprikukrydd
svartur pipar
tortilla kökur
salsa sósa
guacamole
sýrður rjómi
ferskt spínat
ostur (rifinn eða í sneiðum)

Sláið saman eggin með paprikukryddi, svörtum pipar og tabascosósu (ég nota ca. 10 dropa, má alveg nota minna). Skerið fiskflökin í litla bita og veltið upp úr eggjunum. Steikið á pönnu í augnablik.
Setjið á tortillakökuna í ca. þessari röð: salsasósu, guacamole, sýrðan rjóma, spínat og ost. Raðið svo heitum fiskibitunum ofan á ostinn svo hann bráðni, rúllið upp og ETIÐ!
27. mars 2007 klukkan 19:43
Hjördís Ţráins
Uppskriftir
6 athugasemdir
27febrúar

Kökum böku

Ég hef ekkert að segja svo ég set bara inn uppskrift af svaka góðri köku sem ég fann upp á laugardaginn. Þessi kaka er sykurlaus en samt algjör orkubomba. Það er fínt að skera hana í stykki og frysta. Fyrst kemur samt uppskrift af döðlumaukinu sem er í kökunni.

Döðlumauk
250 gr. döðlur
2 bollar vatn
soðið vel saman í potti í ca. 20 mín
maukað í matvinnsluvél

Kakan
100 gr. möndlur með hýði
100 gr. valhnetukjarnar með hýði
3 lítil epli, afhýdd og rifin
2 bollar fínmalað spelt
1/2 bolli kakó (best er að nota 100% kakó)
1 1/2 bolli kókosmjöl
3 tsk. vínsteinslyftiduft
2 tsk. maldon salt
1 tsk. kanill
4 msk. kókosolía
1 - 1 1/2 bolli heitt vatn
Döðlumaukið

Kókosolíukrukkan sett í heitt vatn í smá stund svo olían bráðni aðeins (auðveldara að mæla 4 msk. og betra að blanda í deigið ef hún er bráðin). Möndlur og hnetur eru malaðar í matvinnsluvél og settar í skál. Eplin rifin í matvinnsluvélinni og blandað saman við hneturnar ásamt öllum þurrefnum og kryddi. Döðlurnar maukaðar vel í matvinnsluvélinni og sett út í skálina ásamt kókosolíunni og vatninu, blandað vel.
Deigið er sett í stórt springform með bökunarpappír í botninum og bakað við 150°C í 2 klst. Látið alveg kólna áður en hún er skorin.
Kakan er svolítið blaut í miðjunni, eiginlega frekar lík brownies. Svaka gott og sykurlaust ef einhver nennir að gera þetta. Ég á pottþétt eftir að gera hana aftur.
27. febrúar 2007 klukkan 20:19
Hjördís Ţráins
Uppskriftir
Engin athugasemd
01desember

SAMSĆRI! ... og fiskur

Ég er búin að leita út um allan bæ að dagakerti (svona jóla). Hvernig er það, fékkst þetta ekki í öllum búðum bara í fyrra?! Hvað er málið? Þetta er eitthvað samsæri gegn mér! "OK, það má enginn kaupa inn svona dagakerti því Hjördís ætlar að kaupa svoleiðis, svo skulum við alltaf segja að þau séu "ekki komin enn" og  skemmta okkur svo yfir því að fylgjast með henni æða á milli verslana dögum saman!" Djefull...
Ég fann loksins svona kerti í blómabúðinni og Erla skildi ekki hví ég kom síðast til þeirra. Kertið kostaði 370 kr. Need I say more? En hvað gerir maður ekki fyrir barnið.

Annars gerði ég alveg svakalega góðan fiskrétt áðan og má til með að skella uppskriftinni hérna inn.

Karrýfiskur með eplum
-fyrir ca. 4

3 fiskflök, skorin í bita (ekki of stóra)
10 gulrætur, skornar í ca 1 cm bita
1 rauð paprika í bitum
2 græn epli í bitum
2 msk ólívuolía
1 matreiðslurjómi
1 bolli mjólk
1 tsk. svartur pipar
1 tsk. maldon salt
1 fiskiteningur
2 kúfaðar teskeiðar karrý
dass af sósujafnara

Skellið gulrótunum og paprikunni á pönnu og steikið aðeins í olíunni. Setjið eplabitana út í og mallið áfram í ca 5 mín. Hellið matreiðslurjómanum og mjólkinni út á og öllu kryddinu. Látið suðuna koma upp og þykkið þá með sósujafnara (eða smá hveitijafningi). Setjið fiskbitana á pönnuna og ýtið þeim ofan í sósuna. Lokið pönnunni með álpappír (eða loki ef þið eigið svoleiðis fínheit), takið af hellunni og látið standa í 15 mín.
Það er svo alveg sjúklega mergjað að borða með þessu eitthvað gott brauð, jafnvel hrísgrjón.

01. desember 2006 klukkan 01:41
Hjördís Ţráins
Daglegt röfl, Uppskriftir
1 athugasemd
10nóvember

Orđleysi

Ætli maður reyni ekki að blogga af skyldurækninni einni saman, nenni því eiginlega ekki. Það er alltaf nóg að gera, stundum allt of mikið; dagvinna, kvöldvinna, næturvinna... bleh.

Það verður ekki einu sinni slappað af um helgina því kammerkórinn er að fara að taka upp disk. Við verðum í kirkjunni fös.-sun., en þar sem sinna þarf venjulegum kirkjustörfum á laugardeginum (skírn, brúðkaupi...) verður dagskráin nokkuð götótt. Það fer svo allt eftir því hvernig vinnst á laugardeginum hvort ég djammi á laugardagskvöldið. Baggalútur er að spila í Víkurbæ og ég ætla sko að mæta! Ef kórinn klárar að taka upp á laugardaginn þá kemur alveg til greina að fá sér smá söngvatn en annars bara kóklæt eða eitthvað. Ég nenni ekki að mæta úldin á sunnudagsmorgun.

Ég nenni ekki að blogga og yfirleitt ekki að elda heldur, því ætla ég að deila með ykkur mjög auðveldri uppskrift af fiskrétti sem er upplagt að "drulla" í form.

Blaðlauksfiskidrulla í ofni - fyrir 4-6

1 1/2 bolli hýðishrísgrjón
2-3 fiskflök
1 blaðlaukur
1 búnt vorlaukur
1 græn paprika
1 msk. olía
1 dós blaðlaukssmurostur
1 dós hvítlauksrjómaostur
2 bollar mjólk
1 grænmetisteningur
Rifinn ostur

1. Sjóðið grjónin og drullið í botninn á eldföstu móti. Búið til sósuna á meðan grjónin sjóða.

2. Skerið grænmetið eftir hentugleik og steikið í olíunni (í potti). Hellið helmingnum af mjólkinni í pottinn og setjið allan ostinn út í. Látið bráðna vel, setjið restina af mjólkinni út í ásamt grænmetisteningnum.

3. Skerið fiskflökin í bita og raðið yfir hrísgrjónin. Hellið sósunni yfir og rifnum osti þar á eftir. Bakið í ofni í 40-50 mín við 200°C. Étið með hvítlausbrauði og salati.

Étið vel og sjá'st!
10. nóvember 2006 klukkan 02:19
Hjördís Ţráins
Tónlist, Daglegt röfl, Uppskriftir
Engin athugasemd

Ađalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Hver er RockSock?

Aumingi međ hor og heimsku,
háriđ greitt í flóka.
Ţjáist bćđi' af gremju og gleymsku
grínlaust... Érađ djóka!

-*-

Yes, I like to expiriment. With my hair... and ways of beating men to a psychological pulp.

-RockSock

Drasl

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...